Látrabjarg

Fulltrúar Umhverfisstofnunar, Vesturbyggðar og landeigenda vinna nú að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Látrabjarg.

Látrabjarg var friðlýst sem friðland í mars árið 2021. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstætt lífríki Látrabjargs og búsvæði fugla og viðhalda náttúrulegu ástandi svæðisins og landslagi. Enn fremur er markmið friðlýsingarinnar að vernda menningarminjar og menningararf svæðisins en um menningarminjar fer samkvæmt ákvæðum minjalaga nr. 80/2012.

Friðlandið er um 37 km2 að stærð og er bæði um verndarsvæði á landi og í hafi að ræða.

Nánar um hið friðlýsta svæði

 Hér að neðan er að finna verk- og tímaáætlun og samráðsáætlun vegna verkefnisins. Lögð er áhersla á opið og gagnsætt ferli og eru einstaklingar hvattir til að kynna sér verkefnið og senda inn athugasemdir og ábendingar.

 Frekari upplýsingar veita Þórdís Björt Sigþórsdóttir thordis.sigthorsdottir@umhverfisstofnun.is  og Edda Kristín Eiríksdóttir eddak@umhverfisstofnun.is  eða í síma 591-2000. 

Tengd skjöl:
Samráðsáætlun/hagsmunaaðilagreining 

Fundargerðir samstarfshóps

Fundargerðir samráðsfunda