Útbúinn var listi yfir fyrirtæki sem flytja inn sólarvarnir og tengdar vörur út frá upplýsingum frá Tollstjóra fyrir árið 2014 og á heimasíðum fyrirtækjanna. Farið var í eftirlit til eftirtalinna 9 birgja og í 8 verslanir. Eftirlitið stóð yfir tímabilið 21. maí – 11. júní 2015.
Birgjar | Verslanir |
Arctic Trading Company hf., Reykjavík |
Akureyrarapótek, Akureyri |
Avon ehf., Reykjavík |
Apótekarinn, Akureyri |
Beiersdorf ehf., Reykjavík |
Nettó, Akureyri |
Celsus ehf., Reykjavík |
Lyfja, Egilsstöðum |
Icepharma ehf., Reykjavík |
Heilsuhúsið, Lágmúla, Reykjavík |
ÓM snyrtivörur ehf., Reykjavík |
Hagkaup, Holtagörðum, Reykjavík |
Sigurborg ehf., Reykjavík |
Krónan, Selfossi |
Terma ehf., Reykjavík | Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki |
Volare ehf., Vestmannaeyjum |
Niðurstaða verkefnisins sýnir að mjög lítið var um frávik frá gildandi reglugerðum og að sólarvörur í úrtaki uppfylla í nær öllum tilfellum kröfur þeirra. Birgjar eru nær undantekningarlaust vel upplýstir um þær reglugerðir og kröfur sem gilda um sólarvarnir og aðrar snyrtivörur og leggja áherslu á að flytja inn vandaðar og öruggar vörur. Sólarvörur á markaði hér á landi eru nær allar fluttar inn frá Evrópu. Þau frávik sem kröfðust úrbóta eiga við um sólarvörur sem fluttar eru inn frá landi utan EES svæðisins. Algengustu frávikin eru talin upp hér á eftir og voru gerðar kröfur um úrbætur til innflutningsaðila:
Viðbrögð fyrirtækja við niðurstöðu eftirlitsins voru í öllum tilfellum jákvæð og samskipti og samvinna við Umhverfisstofnun góð. Það fyrirtæki sem hafði frávik leitaði til stofnunarinnar um nánari upplýsingar um kröfur sem gilda um snyrtivörur. Þegar fyrirtækið hafði sýnt fram á úrbætur var því sent bréf um málslok.