Iðnaður

Síðast uppfært: 16. maí 2023

Úthlutun

 Þann 28. febrúar 2023 voru rekstraraðila búnir að fá úthlutað losunarheimildum fyrir árið 2023.

 Þeir rekstraraðilar sem fengu úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum á núverandi viðskiptatímabili má sjá í töflunni hér   að neðan, ásamt því magni af losunarheimildum sem var úthlutað.

 

 

2021

2022

2023

Alcoa Fjarðarál

501.161

501.161

501.161

Rio Tinto Alcan

306.737

307.007

307.007

Norðurál

456.254

456.254

456.254

Elkem

383.445

383.445

383.445

PCC Bakki

76.072

75.837

75.837

 

Uppgjör

Þann 1. maí 2023 voru þeir rekstraraðilar sem falla undir kerfið búnir að gera upp losun ársins 2022.

Losunin í iðnaði jókst á milli ára, eða um 1,9 prósent,  og var hún 1.879.076 tonn af CO2 ígildum árið 2022 samanborið við 1.843.588 tonn af CO2 ígildum árið 2021. 

Rekstraraðilar í staðbundnum iðnaði sem gerðu upp heimildir sínar fyrir losun ársins 2022 voru sex talsins, sem eru jafn margir og gerðu upp árið áður.

Á gagnvirka grafinu hér að neðan er hægt að skoða staðfesta losun frá 2013 frá öllum flugrekstraraðilum sem gera upp í ETS á Íslandi. Með því að velja strikin þrjú í hægra horninu er hægt að niðurhala gögnunum.
 
 
Nokkrir rekstraraðilar hafa verið starfandi allt tímabilið og verið með nokkuð stöðuga losun. Það eru Alcoa, Elkem, Norðurál og Rio Tinto.

Loðnuvinnslan hf. Fáskrúðsfirði féll undir kerfið til 2020 en frá og með 2021 er hún undanskilin ETS kerfinu skv. 14. gr. a laga nr. 70/2012 um loftlagsmál.

United Silicon gerði upp losun sína árin 2016-2017 á meðan sá rekstraraðili var starfandi.

PCC Bakki hóf starfsemi 2018 og hefur gert upp losun í ETS kerfinu frá þeim tíma.

Verne Data Center hefur gert upp losun frá 2015 en er losun þeirra minna en 0.1% af allri losun frá staðbundnum iðnaði í ETS kerfinu á Íslandi. 

Samanburður

Á gagnvirka grafinu hér að neðan er hægt að skoða samanburð á endurgjaldslausum losunarheimildum fyrir alla rekstraraðila á Íslandi í heild sinni og staðfesta losun frá þeim. Með því að velja strikin þrjú í hægra horninu er hægt að niðurhala gögnunum.