Tilgangur:
Framkvæmd og helstu niðurstöður:
Verkefnið náði til allra söluaðila notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Umhverfisstofnun óskaði eftir skrám vegna sölu varanna á árinu 2022 þar sem fram kæmu upplýsingar um vöruheiti, umbúðastærð, fjölda seldra eða afhentra sölueininga af hverri umbúðastærð, dagsetningu sölu, nafn og kennitölu notendaleyfishafa, sem og nafn og kennitölu fyrirtækis (ef við á).
Eftirfarandi fyrirtæki féllu undir umfang eftirlitsins:
Á árinu 2022 voru seldar 36 notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og nam salan alls 6.419 kg sem samsvarar 2.278 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 1. Af notendaleyfisskyldum útrýmingarefnum voru seldar 11 vörur og nam salan alls 9.424 kg en það samsvarar 11,0 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 2. Bent skal á að styrkur virka efna í nagdýraeitri er mun minni en í skordýraeitri eða einungis 0,005%, og því er magn virkra efna í nagdýraeitri sem selt var mun minna en í skordýraeitri.
Tafla 1 Notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur sem seldar voru árið 2022
Plöntuverndarvörur | |||||
Illgresiseyðir | Skordýraeyðir | Sveppaeyðir | Stýriefni | Samtals | |
Fjöldi vara í sölu | 14 | 8 | 10 | 4 | 36 |
Fjöldi virkra efna | 14 | 8 | 13 | 4 | 39 |
Sala alls af vörum | 2.053 kg | 411 kg | 3.713 kg | 242 kg | 6.419 kg |
Sala alls (kg af virku efni) | 782 kg | 14,4 kg | 1.444 kg | 37,5 kg | 2.278 kg |
Tafla 2 Notendaleyfisskyld útrýmingarefni sem seld voru árið 2022
Útrýmingarefni | |||
Nagdýraeitur | Skordýraeitur | Samtals | |
Fjöldi vara í sölu | 9 | 2 | 11 |
Fjöldi virkra efna | 1 | 2 | 3 |
Sala alls af vörum | 9.010 kg | 415 kg | 9.425 kg |
Sala alls (kg af virku efni) | 0,451 kg | 10,6 kg | 11,0 kg |
Eingöngu má afhenda notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni til aðila sem hafa gild notendaleyfi frá Umhverfisstofnun. Niðurstöður sem fást úr verkefninu sýna að af alls 129 kaupendum notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara voru 116 (90%) með notendaleyfi í gildi, en 13 (10%) höfðu aldrei verið með leyfi þegar kaupin áttu sér stað. Alls voru 108 sem keyptu útrýmingarefni á árinu 2022 og voru allir viðskiptavinir með notendaleyfi í gildi þegar kaupin áttu sér stað. Sjá nánar í töflu 3.
Notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum |
Notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum |
|
Fjöldi % | Fjöldi % | |
Kaupandi með leyfi í gildi | 116 90% | 108 100% |
Kaupandi með útrunnið leyfi | 0 0% | 0 0% |
Kaupandi aldrei haft leyfi | 13 10% | 0 0% |
Kaupendur alls | 129 | 108 |
Hlutfall þeirra sem voru með leyfi í gildi við kaup á notendaleyfisskyldum vörum er hátt. Engu að síður gerist það ennþá að kaupendur á þessum vörum séu ekki með notendaleyfi í gildi og hefur stofnunin áréttað við hlutaðeigandi fyrirtæki að þau ræki lagaskyldur sínar hvað þetta varðar.