Inngangur
Merkingar snyrtivara skulu vera skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku samkvæmt reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009. Reglugerðin gerir þó strangari tungumálakröfur varðandi snyrtivörur sem innihalda tiltekin innihaldsefni sem geta valdið hættu, en þá skulu notkunarskilyrði og varnarorð vera á íslensku. Slík krafa gildir meðal annars um vörur sem notaðar eru til augnhára- og augnbrúnalitunar.
Tilgangur og markmið
Framkvæmd og niðurstöður
Upplýsingar um birgja sem eru að markaðsetja augnbrúna- og augnháraliti hérlendis voru fengnar út frá tollskrá, heimsóknum á sölustaði sem selja slíkar vörur og í samtölum við starfsfólk snyrtistofa. Í úrtaki eftirlits lentu sex birgjar og var farið í eftirlit til þeirra dagana 5. og 7. desember 2017. Á hverjum stað voru skoðaðar 3-5 vörur og teknar ljósmyndir af merkingum þeirra og innihaldslýsingu, til nánari skoðunar, í því skyni að kanna hvort tilgreind séu rétt notkunarskilyrði og varnarorð á íslensku fyrir augnbrúna- og augnháraliti og festinn sem þeim fylgir. Samkvæmt III. viðauka í reglugerð (EB) nr. 1223/2009 skulu slíkar merkingar vera á vörunum eða fylgiseðli með þeim. Jafnframt var skoðað út frá innihaldslýsingu varanna hvort þær innihaldi bönnuð efni skv. II. viðauka í sömu reglugerð.
Eftirfarandi birgjar lentu í úrtaki eftirlitsins:
Alls voru skoðaðar 22 vörur og reyndust 20 vörur vera með frávik frá reglum, þar af 17 sem vantaði alfarið íslensk notkunarskilyrði og varnarorð. Í þremur tilvikum þurfti að lagfæra eða uppfæra merkingar. Engar vörur reyndust vera með bönnuð innihaldsefni samkvæmt innihaldslýsingu.
Niðurstöður eftirlits:
|
Fjöldi |
Hlutfall |
Vörur í úrtaki |
22 |
|
Vörur án frávika |
2 |
9% |
Vörur sem vantaði íslenskar merkingar |
17 |
77% |
Vörur þarfnast lagfæringa eða uppfærslu merkinga |
3 |
14% |
Birgjar fengu sendar niðurstöður eftirlitsins í formi eftirlitsskýrslu og bréfs þar sem fram komu kröfur Umhverfisstofnunar um úrbætur. Allir hafa brugðist við á fullnægjandi hátt, að einum undanskyldum, og fór mál hans í eftirfylgni hjá stofnuninni.