Eftirlit með sólarvörnum
Tilgangur og markmið:
Frá því að Umhverfisstofnun réðist síðast í eftirlitsverkefni með innihaldsefnum og merkingum á sólarvörnum í sölu til almennings á árinu 2016 hafa orðið breytingar á löggjöf í þá átt að banna fleiri innihaldsefni í snyrtivörum. Verkefnið er endurtekið nú til þess að skoða hvort því hafi verið fylgt eftir af framleiðendum sólarvarna að hætta notkun á þeim efnum sem eru á bannlista. Sólarvarnir falla undir reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir hér á landi reglugerð (EB) nr. 1223/2009 sama heitis. Sólarvarnir sem eru markaðssettar fyrir börn þurfa að uppfylla strangari kröfur varðandi leyfileg innihaldsefni, styrk innihaldsefna og notkun þeirra samkvæmt reglugerðinni.
Framkvæmd og niðurstöður:
Farið var í 19 verslanir sem flytja inn eða selja sólarvarnir og tvær vörur valdar að handahófi í mismunandi sólarvarnarstyrk (SPF) á hverjum eftirlitsstað. Skoðað var hvort vörurnar væru löglegar á markaði með því að skoða merkingar þeirra og tilkynningar í snyrtivöruvefgátt ESB (CPNP). Einnig var kannað hvort vörurnar innihaldi efni sem eru ekki lengur leyfileg í sólarvörnum með því að skoða innihaldslýsingu þeirra og sérlega var einblínt á innihaldsefni sem eru ekki lengur leyfileg í sólarvörnum (frá 2016). Í einni verslun fundust engar sólarvarnir, og í einni verslun fannst einungis ein sólarvörn.
Eins og fram kemur í töflunni hér að neðan voru í eftirlitinu skoðaðar alls 33 vörur. Reyndust 3 þeirra vera með frávik og þar af var 1 vara sem er sérstaklega ætluð börnum.
Fjöldi vara | Fjöldi vara með frávik | Fjöldi vara án frávika | |
Sólarvarnir | 24 | 2 (8,3 %) | 22 (91,7 %) |
Sólarvarnir fyrir börn | 9 | 1 ( 11 %) | 8 (89 %) |
Sólarvarnir alls | 33 | 3 (9,1 %) | 30 (90,9%) |
Engin frávik fundust varðandi innihaldsefni sólarvarnanna en ein varan sem er markaðssett fyrir börn, innihélt sinkoxíð og þar sem varan var í umbúðum með pumpu var birgi bent á að forðast ætti að nota þetta innihaldsefni í vörum sem eru þess eðlis að sinkoxíðið gæti endað í lungum við innöndun.
Allar vörurnar reyndust vera skráðar í snyrtivöruvefgátt ESB og þau frávik sem fundust vörðuðu merkingar á vörunum. Birgir vörunnar „Shade all natural sunscreen“ ákvað að taka hana af markaði þar sem vandkvæðum er bundið að merkja hana skv. kröfum reglugerðarinnar. Hafa birgðir af henni verið fjarlægðar af sölustað. Enn er beðið úrbóta varðandi merkingar fyrir eina vöru, sem er sólarvörn ætluð fyrir börn, en þar vantar að uppfæra nafn og heimilisfang ábyrgðaraðlila, þar sem dreifingaraðili sem tilgreindur er á umbúðum er staðsettur í Bretlandi og því utan EES.
Eftirlitið leiddi í ljós að frávik frá gildandi reglugerðum eru fremur fá. Þá voru viðbrögð fyrirtækja í öllum tilfellum jákvæð og samskipti við Umhverfisstofnun góð.
Eftirfarandi eftirlitsþegar féllu undir umfang verkefnisins:
Fyrirtæki: | Starfsemi: |
Akureyrar Apótek Apótek Ólafsvíkur Apótek Suðurlands Austurbæjarapótek Borgarapótek Dyer Farmasía Hagar verslanir (Hagkaup) Hagar verslanir (Útilíf) Heilsuhúsið Heilsa Íslands Apótek Kj.Kjartansson Krónan Lyfja Lyfjabúrið Market ehf (EuroMarket) Parlogis Reykjavíkur Apótek Samkaup (Nettó) Urðarapótek Útivera (Everest) | Lyfjaverslanir Lyfjaverslanir Lyfjaverslanir Lyfjaverslanir Lyfjaverslanir Smásala póstverslana eða um netið Lyfjaverslanir Stórmarkaðir og matvöruverslanir Smásala á íþrótta- og tómstundabúnaði í sérverslunum Önnur smásala á matvælum í sérverslunum Blönduð heildverslun með matvæli, drykkjarvöru og tóbak Lyfjaverslanir Heildverslun með lyf og lækningavörur Stórmarkaðir og matvöruverslanir Lyfjaverslanir Lyfjaverslanir Stórmarkaðir og matvöruverslanir Heildverslun með lyf og lækningavörur Lyfjaverslanir Stórmarkaðir og matvöruverslanir Lyfjaverslun Fataverslanir |