Ilmefni

Hvað getum við gert?

  • Veljum vörur án ilmefna, einkum snyrtivörur sem við skiljum eftir á húðinni.
  • Bæði náttúruleg ilmefni (t.d. ilmkjarnaolíur) og manngerð ilmefni geta valdið óæskilegum áhrifum og því ætti að setja þau undir sama hatt þegar við veljum vörur.
  • Gott er að spreyja ilmvatninu eða rakspíranum á fötin frekar en beint á húðina til að lágmarka líkur á snertiofnæmi.
  • Óléttir einstaklingar og þeir sem eru með barn á brjósti ættu að forðast að mestu vörur með ilmefnum.
  • Forðumst vörur með ilmefnum fyrir börn, einkum ungabörn.
  • Minnkum notkun ilmefna á heimilinu heilt yfir.
  • Ef við viljum ilma vel þá er gott ráð að velja eina snyrtivöru/hreinlætisvöru með ilm og hafa hinar ilmefnalausar.
  • Sýnum tillitsemi við fólkið í kringum okkur þegar við erum í þröngum rýmum eins og t.d. búningsklefum. Spreyjum ilmvatninu, rakspíranum og öðrum vörum sem innihalda ilmefni í spreyformi frekar þegar við erum komin út. Mögulega er einstaklingur í rýminu sem er með viðkvæm öndunarfæri.

Almenn umfjöllun

Meira en 2500 þekkt ilmefni eru notuð í vörur sem við notum í okkar daglega lífi t.a.m. snyrtivörur, hreinlætisvörur, þvotta- og hreinsiefni, mýkingarefni, hárliti, ilmkerti og aðrar heimilisvörur. Ilmefni geta verið manngerð eða náttúruleg en efni úr báðum flokkum geta haft óæskileg áhrif á okkur. Yfirleitt er ilmefnum bætt út í til að gefa vörum góðan eða ferskan ilm en þeim er líka bætt við vörur til að fela vonda lykt hráefna sem notuð eru við framleiðslu þeirra.

Snertiofnæmi

Algengasta orsök snertiofnæmis eru ilmefni en meiri áhætta er á að þróa snertiofnæmi af vörum sem við skiljum eftir á húðinni svo sem krem og svitalyktaeyða heldur en í vörum sem við skolum af t.a.m. sturtusápum og sjampó. Sumir geta notað vörur með ilmefnum án vandræða en aðrir geta þróað með sér snertiofnæmi, því miður er ekki hægt að segja til um hverjir eru líklegri til að þróa með sér ofnæmi. Mikilvægt er að sýna varkárni á að setja vörur með ilm á ungabörn þar sem húð þeirra er almennt þynnri og viðkvæmari en fullorðinna.

Kláði, bólgur og öndunaróþægindi

Vandamál vegna ilmefna eru ekki einungis vegna möguleika á að þróa snertiofnæmi heldur geta sum ilmefni ert augu og húð. Að auki geta þau ert öndunarfæri viðkvæmra einstaklinga eins og þeirra sem eru með astma eða frjókornaofnæmi. Mikilvægt er að vera meðvitaður um að bæði náttúruleg ilmefni og manngerð ilmefni geta valdið óæskilegum áhrifum og því gott að setja þau undir sama hatt við val á vörum.

Merkingar ilmefna í vörum 

Alls eru 26 ilmefni sem krafist er að séu nafngreind í innihaldslýsingu á umbúðum snyrtivara og þvotta- og hreinsiefna ef efnin eru fyrir hendi. Lista yfir efnin og ýmsar nánari upplýsingar má finna í skýrslu Vísindanefndar um öryggi neytenda (e. SCCS) um álit þeirra á ilmefnum í snyrtivörum sem valda ofnæmi. Efnin eru einnig öll skráð í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Efnin linalool, limonene, citronellol og cinnamal eru öll á þessum lista en algengt er að finna þau í snyrtivörum og þvotta- og hreinsiefnum. Fleiri ilmefni eru grunuð um að valda ofnæmi og öðrum óæskilegum áhrifum. Erfitt getur reynst að finna út hvaða ilmefni eru til staðar í vörum eins og snyrtivörum þar sem leyfilegt er að nota hugtakið ilmefni eða „parfum/perfume“ og „aroma“ í stað nafna ilmefnanna. Þetta er einkum gert til einföldunar á merkingum umbúða þar sem notast er við blöndu af ilmefnum.


Tengt efni

Skýrsla Vísindanefndar um öryggi neytenda (e. SCCS) á ensku um álit þeirra á ilmefnum í snyrtivörum sem valda ofnæmi.

Almennt um ilmefni á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet.

Ráðleggingar vegna ilmefna á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).


Efnisinnihald þessarar síðu var síðast uppfært 3. apríl 2024.