Losun ferðasalerna

Góð ráð um losun ferðasalerna

Úrgangur frá ferðasalernum inniheldur bakteríur og efni sem geta verið skaðleg heilsu og umhverfi.

  • Einungis má losa salernisúrgang á sérstökum losunarstöðum.
  • Aldrei nota ferskvatnsslöngu til að skola ferðasalerni eða niðurfall.
  • Notum hanska eða spritt á hendur til að koma í veg fyrir bakteríusmit.
  • Ferðasalerni eru eingöngu fyrir piss, kúk og klósettpappír. Mikilvægt er að nota eingöngu klósettpappír sem er ætlaður ferðasalernum.
  • Notum vistvæn og lífbrjótanleg hreinsiefni. Forðumst að nota klór eða hreinsiefni sem innihalda formaldehýð eða fosfat.
  • Ef hægt er, losum  eldhús- og sturtuvatn í annan farveg en rotþró eða safntank ætluðum salernisúrgangi.
  • Góð ráð til notenda ferðasalerna (á íslensku)
  • Góð ráð til notenda ferðasalerna (á ensku)

Losunarstaðir ferðasalerna höfuðborgarsvæðinu

  • Skólphreinsistöðin við Klettagarða 14, 104 Reykjavík (opna kort)
  • Skólphreinsistöð Hafnarfjarðar í Hraunavík, 221 Hafjarfjörður (opna kort)