Söluskrár 2019 fyrir plöntuverndarvörur og útrýmingarefni

Tilgangur:

  • Að óska eftir skrám yfir sölu frá þeim sem setja á markað notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni en þessum upplýsingum ber að skila til Umhverfisstofnunar ár hvert sbr. 24. gr. efnalaga nr. 61/2013.
  • Að athuga hversu mikið magn af notendaleyfisskyldum plöntuverndarvörum og útrýmingarefnum var selt 2019 og hve það samsvaraði miklu af virkum efnum.
  • Að athuga hvort að þeir sem markaðssetja notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni sinni þeirri skyldu sinni að ganga úr skugga um að einungis þeir sem hafa gild notendaleyfi frá Umhverfisstofnun, sbr. 24. gr. efnalaga nr. 61/2013, fái afhentar þessar vörur.

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

Verkefnið náði til allra söluaðila notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Umhverfisstofnun óskaði eftir skrám vegna sölu á þessum vörum á árinu 2019 þar sem fram kæmu eftirfarandi upplýsingar: vöruheiti, umbúðastærð, fjöldi seldra eða afhentra sölueininga af hverri umbúðastærð, dagsetning sölu, nafn og kennitala notendaleyfishafa, sem og nafn og kennitala fyrirtækis, ef við átti.

Eftirfarandi fyrirtæki féllu undir umfang eftirlitsins:

  • Garðheimar – Gróðurvörur ehf.    
  • Grastec ehf.
  • Kemi ehf.
  • Samhentir Kassagerð ehf.
  • Studio Norn ehf.
  • Streymi heildverslun ehf.

Á árinu 2019 voru seldar 30 notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og nam salan alls 2700 kg sem samsvarar 1145 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 1. Af notendaleyfisskyldum útrýmingarefnum voru seldar 11 vörur og nam salan alls 9213 kg en það samsvarar 9,9 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 2. Bent skal á að styrkur virkra efna í nagdýraeitri er mun minni en í skordýraeitri eða einungis 0,005%, og því er magn virkra efna í nagdýraeitri sem selt var mun minna en í skordýraeitri.

Tafla 1 Notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur sem seldar voru 2019

 

Plöntuverndarvörur
 
 
 
Illgresiseyðir
Skordýraeyðir
Sveppaeyðir
Stýriefni
Samtals
Fjöldi vara í sölu
9
8
10
3
30
Fjöldi virkra efna
9
8
10
3
30
Sala alls af vörum
1.517 kg
287 kg
883 kg
13 kg
2.700 kg
Sala alls (sem magn af virku efni)
847 kg
23 kg
267 kg
8 kg
1.145 kg

Tafla 2 Notendaleyfisskyld útrýmingarefni sem seld voru 2019

 
Útrýmingarefni
 
 
 
Nagdýraeitur
Skordýraeitur
Samtals
Fjöldi vara í sölu
10
1
11
Fjöldi virkra efna
2
1
3
Sala alls af vörum
8.835 kg
378 kg
9.213 kg
Sala alls (sem magn af virku efni)
0,442 kg
9,45 kg
9,9 kg






Eingöngu má afhenda notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni til aðila sem hafa gild notendaleyfi frá Umhverfisstofnun. Niðurstöður sem fást úr verkefninu sýna að af alls 121 kaupendum á notendaleyfisskyldum plöntuverndarvörum voru 118 (97%) með notendaleyfi í gildi, en 1 (1%) voru með útrunnin leyfi og 2 (2%) höfðu aldrei verið með leyfi þegar kaupin áttu sér stað. Alls voru 93 sem keyptu útrýmingarefni á árinu 2019 og þar af var 1 (1%) sem hafði aldrei verið með leyfi þegar kaupin áttu sér stað.

 

 
Notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum
 fjöldi %
 
Notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum
 fjöldi % 
Kaupandi með leyfi í gildi
 118
97 %
 92 99%
Kaupandi með útrunnið leyfi
 1 1 %
 
 0 0%
Kaupandi aldrei haft leyfi
 2 2 %
 
 1 1%
Kaupendur alls
 121
 
 93





 

Hlutfall þeirra sem voru með leyfi í gildi við kaup á notendaleyfisskyldum plöntuverndarvörum hefur aldrei verið jafn hátt eins og á árinu 2019 og eru það mjög góð tíðindi. Engu að síður gerist það ennþá að kaupendur á þessum vörum séu ekki með notendaleyfi í gildi og verður það áréttað við hlutaðeigandi fyrirtæki að þau ræki lagaskyldur sínar hvað þetta varðar.