Landinu er skipt í 9 heilbrigðiseftirlitssvæði. Á þeim svæðum sjá viðeigandi sveitarfélög um heilbrigðiseftirlit. Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga má skipta í heilbrigðisnefndir og heilbrigðisfulltrúa. Heilbrigðisfulltrúar starfa sem fulltrúar viðkomandi heilbrigðisnefndar. Þeir hafa umsjón með starfsleyfisgerð og eftirliti með efnavörum, hollustuháttum, matvælum, umhverfisgæðum og mengandi starfsemi innan heilbrigðiseftirlitssvæða.
Heilbrigðiseftirlitssvæði | Símanúmer |
Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) | 550 5400 |
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur (HER) | 411 1111 |
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands (HVL) | 431 2740 / 431 2750 |
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða (HVF) | 456 7087 |
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra (HNV) | 453 5400 |
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra (HNE) |
462 4431 |
Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) | 474 1235 |
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands (HSL) |
480 8250 |
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES) |
420 3288 |
Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi |