Stök frétt

Í dag var 32. svansleyfið á Íslandi afhent prentsmiðjunni Litlaprent ehf. Prentsmiðjan var stofnuð 1969 af Guðjóni Long. Árið 1973 var prentsmiðjan gerð að hlutafélagi og Georg Guðjónsson, núverandi framkvæmdastjóri, kom inn í reksturinn. Síðan þá hefur prentsmiðjan vaxið og starfsemin nú orðin fjölbreytt og býður bæði uppá offset og stafræna prentun. Fyrirtækið hefur frá upphafi verið rekið og í eigu sömu fjölskyldu og starfa nú um 20 manns hjá fyrirtækinu.
Litlaprent var formlega afhent leyfisskjalið við hátíðlega athöfn í dag. Almennt stóðst starfsemin kröfur Svansins og eiga aðstandendur vottunarinnar hrós skilið, m.a. fyrir sérstaklega góðar merkingar á flokkunarstöðum og snyrtileg húsakynni.
Ferlar fyrirtækisins eru skýrir og sannfærandi og hefur fyrirtækið hefur unnið hörðum höndum að breytingum í ferlum sínum og innkaupum til að uppfylla kröfur Svansins.

Mikilvægt er að koma skilaboðunum til neytenda að þeirra val skiptir höfuðmáli og að hægt er að velja vörur sem hafa afar slæm áhrif á umhverfið eða vörur þar sem áhrifin hafa verið minnkuð til muna.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta yfir 60 mismunandi vöru- og þjónustuflokka.

Kröfur Svansins fyrir prentsmiðjur miðast að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá öllu prentferlinu, allt frá uppruna hráefna til meðhöndlun úrgangs.

  • Hvatt til  þess að valdar séu umhverfismerktar vörur  og þjónusta í innkaupum  
  • Kröfur varðandi pappír og efnanotkun eru strangar og uppfærðar reglulega
  • Mikil áhersla er lögð á að lágmarka úrgangsmyndum og afskurð
  • Gerð er krafa um reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að stýra  umhverfisstarfi  
  • Ekki er heimilt að nota efni sem eru hættuleg umhverfinu eða heilsu manna
  • Meðhöndlun efnaúrgangs þarf að vera ábyrg og almenn flokkun skýr