Stök frétt

Mynd: Krystian Tambur - Unsplash
Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á breyttu starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. á Röndinni við Kópasker vegna landeldis á laxfiskum. Tillaga að breytingu á starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 9. október til og með 7. nóvember 2023 þar sem hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma en ein ábending barst fyrir auglýsingu og er gerð grein fyrir henni í greinargerð.
Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um útgáfu
Starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. Röndinni, Kópaskeri, breytt