Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Thor landeldi ehf. vestan Þorlákshafnar fyrir landeldi á laxfiskum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 2. desember til og með 30. desember 2024 og hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.

Aftast í starfsleyfinu fylgir greinargerð þar sem farið er yfir málsmeðferðina og tekin afstaða til niðurstöðu umhverfismats, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:
Starfsleyfi fyrir Thor landeldi ehf.
Ákvörðun um útgáfu