Stök frétt

Tillaga að breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar við Bakkafjörð 


Umhverfisstofnun hefur tekið ákvarðanir um útgáfu leyfa ORF Líftækni hf. fyrir afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera, annarsvegar í húsnæði Landbúnaðarháskólans á Keldnaholti, Reykjavík, og hinsvegar í tilraunagróðurhúsi Garðyrkjuskólans á Reykjum, Ölfusi.

Um er að ræða leyfi fyrir ræktun á erfðabreyttu byggi. Starfsemin fellur undir afmörkunarflokk 2, sbr. viðauka 2 reglugerðar nr. 276/2002 um afmarkaðanotkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera. Nánari upplýsingar má finna í greinargerðum með leyfunum.

Leyfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og reglugerð nr. 276/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera. Leyfin hafa þegar tekið gildi og gilda til 22. febrúar 2040.

Umsóknirnar voru sendar til Vinnueftirlitsins og ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur til umsagnar, í samræmi við ákvæði laga nr. 18/1996 og reglugerðar nr. 276/2002.

Umsóknir rekstraraðila eru meðfylgjandi þessari tilkynningu ásamt umsögnum Vinnueftirlits og ráðgjafanefndar. Einnig eru meðfylgjandi viðbragðsáætlanir, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 276/2002.

Umhverfisstofnun bendir á að skv. 29. gr. laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur sæta ákvarðanir Umhverfisstofnunar er varða veitingu leyfis, kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá auglýsingu ákvörðunarinnar, skv. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. 

Fylgiskjöl:
Leyfi Reykjum með greinagerð
Leyfi Keldnaholti með greinargerð
Umsókn rekstraraðila Reykjum
Umsókn rekstraraðila Keldnaholti
Umsögn Vinnueftirlits vegna Reykja
Umsögn Vinnueftirlits vegna Keldnaholts
Umsögn ráðgjafanefndar vegna Reykja og Keldnaholts
Viðbragðsáætlun Reykir
Viðbragðsáætlun Keldnaholt