Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir áform um útgáfu bráðabirgðaheimildar fyrir Nordic Fish Leather ehf. vegna sútunarverksmiðju þeirra.

Nordic Fish Leather ehf. óskar eftir bráðabirgðaheimild til að hægt sé að halda áfram starfsemi á nýrri staðsetningu meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, en starfsemin er að flytjast frá Sauðárkróki til Tálknafjarðar. Umhverfisstofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum. 

Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til kl. 12:00 þann 27. maí 2024. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið ust@ust.is merktar UST202402-281.