Mannauður

Vinnustaðurinn

Umhverfisstofnun er kjarninn í umhverfis- og náttúruvernd á Íslandi. Stofnunin gegnir lykilhlutverki í því að tryggja gæði umhverfisins og stuðla að verndun náttúrunnar. Starfsemi okkar er staðsett á níu starfsstöðvum um land allt, þar sem við leggjum ríka áherslu á að skapa verkefnamiðað vinnuumhverfi sem styður við framsækni og samvinnu.

Mannauður Umhverfisstofnunar er grunnstoðin að árangri okkar. Við stefnum að því að vera fyrirmyndarstofnun í þjónustu og eftirsóknarverður vinnustaður þar sem hæfileikaríkt og drífandi fólk þrífst.

Meðalaldur starfsfólks okkar er 42 ár, og við erum á bilinu 120-150 starfsmenn sem deilum ástríðu fyrir umhverfisvernd. Við viljum besta starfsfólkið, óháð staðsetningu, og leggjum okkur fram um að öllum líði vel í vinnunni. Starfsstöðvar okkar eru víðs vegar um landið.

Sérfræðingur á sviði umhverfisgæða

Umsóknarfrestur

19.12.2024 til 13.01.2025

Inngangur

Laust er til umsóknar starf sérfræðings á sviði umhverfisgæða í teymi eftirlits. Helstu verkefni sérfræðingsins munu felast í samræmingu starfs heilbrigðiseftirlita og leiðbeiningum og fræðslu til heilbrigðiseftirlita auk mengunareftirlitsstarfa hjá Umhverfis- og orkustofnun. Sérfræðingurinn mun hafa samstarf við ýmsar stofnanir sem koma að málefnum tengdum hollustuháttum. Þátttaka í eftirlitsstarfi felur í sér ferðalög innanlands og samskipti við eftirlitsskylda aðila. 
 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samræming starfs heilbrigðiseftirlita
  • Leiðbeiningar og fræðsla til heilbrigðiseftirlita
  • Eftirlit með fyrirtækjum sem hafa starfsleyfi útgefin af Umhverfisstofnun
  • Önnur tengd verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði náttúruvísinda, verkfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og/eða reynsla af málefnum hollustuhátta og mengunareftirlits er kostur
  • Reynsla af að starfa í teymi er kostur
  • Stafræn verkefni - þekking og geta til að sýna frumkvæði
  • Mjög gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
  • Gott vald á ensku
  • Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum er skilyrði
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur

Tengiliðir

Sigríður Kristinsdóttir - sigridur.kristinsdottir@umhverfisstofnun.is - 5912000

Þóra Margrét Pálsdóttir Briem - thora.m.briem@umhverfisstofnun.is - 5912000

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags hafa gert.

Spennandi vinnuumhverfi í nýrri stofnun

Umhverfis- og orkustofnun er ný stofnun sem fer með stjórnsýslu og eftirlit auk annarra verkefna á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefna auðlindanýtingar. Stofnunin tekur til starfa þann 1.1.2025 við sameiningu Orkustofnunar og hluta Umhverfisstofnunar.
Vinnuumhverfi nýrrar stofnunar verður metnaðarfullt og við viljum laða að öflugt fagfólk sem leggur áherslu á sífelldar umbætur og stafræna þróun. Áhersla verður á heilsu, öryggi og vellíðan og að búa skilyrði fyrir starfsfólk okkar til að þróast og eflast í starfi. Við verðum með 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma. Við munum vinna í opnum rýmum á flestum starfsstöðvum, og verkefnamiðuðu umhverfi. Það verður áhersla á gott andrúmsloft í teymisvinnu og samstarf milli teyma. Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun er á umhverfisstofnun.is og Orkustofnun á os.is en nýr vefur Umhverfis- og orkustofnunar uos.is opnar í janúar.

Hvar má bjóða þér að vinna?
Umhverfis- og orkustofnun mun starfa á 6 starfsstöðvum um landið. Valið stendur um Akureyri, Mývatnssveit, Egilsstaði, Selfoss, Reykjavík og Hvanneyri.
Sviðsstjóri sviðs umhverfisgæða er Lilja Ólafsdóttir Teymisstjóri eftirlitsteymis er Sigríður Kristinsdóttir og  veitir hún nánari upplýsingar um starfið auk Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 591 2000.
Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna. 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.01.2025

Sækja um

Umhverfisvænn og barnvænn vinnustaður

Við erum stolt af því að vera umhverfisvænn vinnustaður, með Svansvottun, ISO 14001 umhverfisstjórnunarkerfi, og þátttöku í verkefninu Græn Skref. Umhverfisvænn lífsstíll er einnig studdur með vegan úrvali í matsalnum okkar á Suðurlandsbraut og samgöngusamningum sem hvetja til umhverfisvænna ferðamáta. 

Auk þess erum við barnvænn vinnustaður, sem tryggir sveigjanleika og stuðning við fjölskyldulíf starfsmanna.

Sveigjanlegt og heilsueflandi vinnuumhverfi

Umhverfisstofnun býður upp á sveigjanlegan vinnutíma með 36 stunda vinnuviku, og fjarvinnuheimild 1-2 daga í viku fyrir mörg störf.

Heilsuefling er hjartans mál og bjóðum við íþróttastyrki fyrir starfsfólk okkar, ásamt þátttöku í viðburðum eins og „Hjólað í vinnuna“, þar sem Umhverfisstofnun hlaut 1. sætið í sínum flokki árið 2022

Sjá einnig: Starfsfólk Umhverfisstofnunar toppar Snæfelljökul

Fyrirmyndarstofnun í þjónustu

Við leggjum mikla áherslu á að vera fyrirmyndarstofnun í þjónustu. Markmið okkar er að efla úrvinnslu og miðlun upplýsinga til hagaðila og tryggja að allar ákvarðanir og aðgerðir séu byggðar á áreiðanlegum gögnum og faglegri þekkingu.

Gæðastjórnunarstaðallinn ISO 9001 og jafnlaunavottun okkar eru dæmi um það hvernig við tryggjum jafnræði og gæði í allri okkar starfsemi.