Vinnsluferli - fundargerðir samstarfshóps

Gabrielle Henderson - unsplashMynd: Gabrielle Henderson - unsplash


Við endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Snæfellsjökulsþjóðgarð var skipaður samstarfshópur. Í honum áttu sæti fulltrúar frá Snæfellsbæ, Minjastofnun Íslands, Náttúrustofu Vesturlands og Ferðamálasamtökum Snæfellsness auk Umhverfisstofnunar.

Eftirtaldir fulltrúar skipuðu samstarfshópinn:

  • Ásta Hermannsdóttir, fulltrúi Minjastofnunar Íslands
  • Jónína Herdís Ólafsdóttir, fulltrúi Snæfellsbæjar
  • Olga Sædís Aðalsteinsdóttir, fulltrúi Ferðamálasamtaka Snæfellsness
  • Róbert Arnar Stefánsson og Menja von Schmalensee, fulltrúar Náttúrustofu Vesturlands
  • Guðbjörg Gunnarsdóttir, Hákon Ásgeirsson, Jón Björnsson, Linda Björk Hallgrímsdóttir og Sæmundur Kristjánsson, fulltrúar Umhverfisstofnunar.


Reglulegir samstarfsfundir hópsins voru haldnir frá 12. maí 2020 – 4. október 2021 en á því tímabili fór megin textavinna fram. Áætlunin var lögð fram til almennrar kynningar í júní 2022 og var frestur gefinn fram í september til að skila inn athugasemdum og umsögnum. Erindi voru send til samráðsaðila þar sem vakin var athygli á kynningartímanum og voru drögin auglýst á vefsíðu Umhverfisstofnunar. Alls bárust athugasemdir eða umsagnir frá átta aðilum auk umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfesti áætlunina 24. mars 2023 í nýrri þjóðgarðsmiðstöð sem opnuð var þann dag.  

 

Fundir samstarfshóps - fundargerðir: