Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir olíubirgðastöð Gallon ehf., Örfirisey, 101 Reykjavík. Rekstraraðila er heimilt að geyma allt að 68.900 m3 af olíu og bensíni í stöðinni á hverjum tíma og þar af olíu í stærsta geymi allt að 7.900 m3 og allt að 8.100 m3 af bensíni.


Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á á tímabilinu 27. september 2024 til og með 28. október 2024 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.
Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Starfsleyfi Gallon ehf., Örfirisey