Stök frétt

Aðeins fyrir efni um Al

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Al, álvinnslu hf. Í tillögunni er lagt til að rekstraraðila sé heimilt að að vinna ál úr allt að 12.000 tonnum á ári af álgjalli auk þjónustu fyrir eigin starfsemi. Þá er lagt til að meðhöndun gjallsands og síuryks í skolgryfju til að draga úr umhverfisáhrifum efnisins sé aðeins heimil með samþykki Umhverfisstofnunar.

Með tillögunni er verið að bregðast við breytingum sem orðið hafa á starfseminni og hafa gert það að verkum að þörf hefur verið á undanþágum frá ákvæðum þess starfsleyfis sem nú er í gildi.

Tillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, á tímabilinu 28. apríl til 23. júní 2011.

Umhverfisstofnun áformar að kynna tillöguna enn frekar á auglýsingatímabilinu á almennum kynningarfundi sem auglýstur verður síðar. Þar verður fjallað um tillöguna og um lög og reglur varðandi veitingu starfsleyfa á vegum Umhverfisstofnunar.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 23. júní 2011.

Tengd skjöl