Stök frétt

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda (ghl) jókst úr 3.710 þús. tonnum árið 2005 í 4.235 þús. tonn árið 2006. Það er aukning um 525.000 tonn, eða 14,2%. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Umhverfisstofnun hefur tekið saman. Umhverfisráðherra hefur óskað eftir nýrri spá frá Umhverfisstofnun og mati á því hvort líkur séu á að Ísland fari fram úr skuldbindingum sínum skv. Kýótó-bókuninni.

Stærsta hluta aukningarinnar má skýra með aukinni losun frá áliðnaði, sem jókst um 404.000 tonn milli 2005 og 2006, eða um 89%. Aukningin er öll frá álveri Norðuráls á Grundartanga og tengist stækkun álversins þar. Mestu munar um losun flúorkolefna (PFC), sem fór úr 18 þús. tonnum CO2-ígilda 2005 í 319 þús. tonn 2006. Þessi losun fellur undir almennar losunarheimildir Íslands samkvæmt Kýótó-bókuninni, en ekki íslenska ákvæðið svokallaða.

Losun ghl frá samgöngum jókst um 146.000 tonn milli áranna 2005 og 2006, eða um 17%, að langmestu leyti vegna vegasamgangna. Umhverfisráðherra óskar eftir því að Umhverfisstofnun skoði losun frá samgöngum og beri saman losun á mann á Íslandi og í öðrum ríkjum sem bera skuldbindingar í loftslagsmálum.

Losun frá sjávarútvegi dróst saman um 113.000 tonn á milli áranna 2005 og 2006, eða um rúm 15%. Samdráttur var í losun bæði frá fiskiskipaflotanum og fiskimjölsverksmiðjum. Losun frá landbúnaði jókst um 33.000 tonn, eða um tæp 7%. Skipting á losun eftir uppsprettum er að finna á kökuriti hér að neðan, auk línurits yfir þróun í losun frá stóriðju, samgöngum, sjávarútvegi og landbúnaði 1990-2006. Losunartölur frá 2007 liggja enn ekki fyrir. Binding kolefnis með skógrækt og landgræðslu nam um 358.000 tonnum árið 2006.

Losun ghl jókst um rúm 24% frá 1990 til 2006. Á skuldbindingartímabili Kýótó-bókunarinnar, 2008-2012, má losun ghl á Íslandi ekki aukast meira en 10% miðað við losun árið 1990. Að auki hefur Ísland sérstaka heimild til aukningar á losun koldíoxíðs frá stóriðju, íslenska ákvæðið.

Auk þess að óska eftir nýrri losunarspá frá Umhverfisstofnun, mun ráðherra boða fulltrúa álfyrirtækjanna til fundar til þess að ræða skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Árangur hefur náðst á undanförnum árum í minnkun á losun PFC og hefur losunin hérlendis síðustu ár verið með því lægsta sem þekkist á tonn af framleiddu áli. Yfirleitt er nokkur aukning á losun í upphafi starfstíma álvera eða þegar nýjar framleiðslueiningar eru teknar í notkun. Á fundinum með álfyrirtækjunum verður farið yfir þessa losun, hvort hætta sé á því að hún verði meiri en spáð hafði verið og til hvaða ráðstafana sé hægt að grípa ef í það stefnir.

 

Sjá einnig á http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1257