Átakið snýst um að safna upplýsingum frá almenningi um menguð svæði á landinu og koma þeim inn á kort.
Við hvetjum alla sem hafa grun um mengaðan jarðveg að senda inn ábendingu.
Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkum eða senda inn nafnlausar ábendingar.
Ábendingar sem sendar eru inn undir nafni eru mjög mikilvæg vinnugögn fyrir eftirlitsstofnanirnar. Almenningur getur ekki séð nöfn þeirra sem hafasent inn ábendingar undir nafni.
Til dæmis svæði þar sem; Olía hefur lekið í jörð; Olía hefur verið grafin í jörð; Urðunarstaðir; Úrgangur hefur verið brenndur eða grafinn; Gamlar bensínstöðvar; Gamlar smurstöðvar; Brennur; Geymslur hættulegra efna þar sem líkur eru til að hættuleg efni hafi lekið út; Riðugrafir; Miltisbrandsgrafir; Skotvellir; Gamlar spennustöðvar; Viðhald og niðurrif skipa.
Upplýsingar um mengaðan jarðveg eru gríðarlega mikilvægar fyrir komandi kynslóðir.
Upplýsingarnar nýtast við skipulagsvinnu. Til dæmis til að koma í veg fyrir að skipulögð sé viðkvæm byggð á svæði þar sem hætta er á heilsuspillandi mengun.
Það er því mikilvægt er að skrá eins mikið af upplýsingum um mengaðan jarðveg og hægt er áður en þær glatast.
Fulltrúi frá Umhverfisstofnun heldur kynningarfundi um verkefnið vítt og breytt um landið. Þar getur fólk fengið nánari upplýsingar og aðstoð við að skrá inn ábendingar.
Einnig verða kynningarfundir á Reykjanesi, Vesturlandi, Suðurlandi og í Reykjavík. Þeir verða auglýstir síðar.
Umsjónaraðili verkefnisins er Kristín Kröyer, sérfræðingur í teymi mengunareftirlits. Netfang: kristin.kroyer@umhverfisstofnun.is