Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið, dags. 20. maí sl., umsókn frá Veiði- og fiskiræktarfélagi Landmannaafréttar um landeldi að Galtalæk 2 í Rangárþingi ytra. Um er að ræða umsókn um starfsleyfi fyrir 2 tonna/ári áframeldi urriða (Salmo trutta) á landi til sleppinga. Lífmassi í stöðinni yrði að hámarki 2 tonn á hverjum tíma.

Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.