Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi fyrir urðunarstað Bolungarvíkurkaupstaðar í landi Hóls. Um er að ræða urðun á allt að 500 tonnum af óvirkum úrgangi á ári.

Unnið er úr umsókn og gerð starfsleyfistillögu. Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.