Stök frétt

SORPA Álfsnesi – urðun úrgangs
Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi fyrir urðunarstað SORPU, Álfsnesi. Um er að ræða urðun á allt að 120.000 tonnum af úrgangi á ári.
Unnið er úr umsókn og gerð starfsleyfistillögu. Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.