Spurt og svarað

Bókunarkerfi í Landmannalaugum

Nei, bókunnar er einungis þörf daginn sem komið er til Landmannalauga, óháð því hve lengi dvalið verður á svæðinu.
Um er að ræða nauðsynlega álagsstýringu í Landmannalaugum. Síðustu ár hefur bílaumferð inn í Landmannalaugar yfir miðjan dag verið meiri en það sem innviðir svæðisins geta ráðið við. Daglega hefur það leitt af sér miklar umferðarteppur og kraðak á vegum og bílastæðum, með tilheyrandi ónæði og neikvæðum áhrifum á bæði umhverfi Landmannalauga og upplifun gesta. Hættulegar aðstæður geta einnig skapast á mjóum aðkomuveginum. Því er talið nauðsynlegt að grípa til álagsstýringa og er markmið bókunarkerfisins að reyna að dreifa bílaumferð og draga úr álagstoppum.
Nei, bókun er einungis óþörf fyrir kl. 16. Svæðið allt er opið allan sólarhringinn, en rukkað er þjónustugjald allan sólarhringinn. Umrætt þjónustugjald er rukkað við bókun þegar hún er gerð.
Jú, bókunar er einungis þörf á milli kl. 9 og 16, en utan þess tíma er öllum frjálst að koma akandi inn á svæðið. Einnig eru nokkrir ferðaþjónustuaðilar sem bjóða upp á daglegar rútuferðir til Landmannalauga sem flestar eru að koma á svæðið fyrripart dags.
Ef þú vilt koma inn á svæðið á einkabíl milli kl. 9 og 16, þá já. Ef þú kemur utan þess tíma (fyrir kl. 9 og eftir kl. 16) þarf ekki að bóka, óháð því hvað þú ætlar að dvelja lengi á svæðinu.
Já, hægt er að hætta við bókunina í gegnum Parka og er hún þá endurgreidd af fullu leyti.
Þjónustugjaldið nýtist í að bæta við starfsfólki sem sinni daglegri upplýsingagjöf, umsjón og eftirliti á svæðinu, ásamt því að það veitir aðgang að salernum í Landmannalaugum, sem er í eigu Ferðafélags Íslands. Þjónustugjaldið er greitt þegar bókun er gerð, eða greitt eftirá ef komið er á svæðið án bókunar.
Já, það er einfalt mál að færa bókunina til í gegnum snjallforrit Parka.
Bókunin er gerð í gegnum ust.is/bokanir, en einnig er hægt að bóka í gegnum Parka appið. Samhliða bókun er greitt þjónustugjald fyrir hverja bifreið.
Nei, bókunar er einungis þörf ef komið er akandi á eigin vegum.
Nei, bókunar er einungis þörf ef komið er til Landmannalauga á milli kl. 9 og 16, óháð því hve lengi á að dvelja á svæðinu. Þú þarft ekki að fara útaf svæðinu á þeim tíma sem bókana er krafist.
Já, svo lengi sem bókanir eru enn lausar verður hægt að gera bókun samdægurs áður en komið er inn í Landmannalaugar. Ekki er hægt að gera bókun hjá starfsmanni á svæðinu, heldur er bókun gerð á ust.is/bokanir eða í Parka appinu.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem koma með gesti til Landmannalauga þurfa ekki að bóka fyrirfram, en allar rútur og aðrir ferðaþjónustubílar munu þurfa að greiða þjónustugjald. Myndavélakerfi vaktar komur bíla inn á svæðið. Ferðaþjónustufyrirtæki eru beðin um að nota sérmerkt stæði sem er í boði fyrir rútur og minni ferðaþjónustubíla, syðst á skálasvæðinu.
Nei, bókunar er einungis þörf fyrir þau sem koma akandi inn á svæðið.
Það getur enn gerst að bílastæðin fyllist líkt og gerst hefur fyrir hádegi, daglega síðustu ár. Bókunarkerfið mun styðja við að það verði núna undantekning frekar en regla. Starfsmenn á svæðinu munu leiðbeina gestum þegar slíkar aðstæður koma upp.
Nei - bókunin er gerð í gegnum ust.is/bokanir, en einnig er hægt að bóka í gegnum heimasíðu Parka. Unnið er í því að gera þetta aðgengilegt í snjallforriti Parka.
Nei, eina sem þarf að passa er að gera eina bókun fyrir hvern bíl, óháð farþegafjölda. Sé hópurinn þinn að ferðast saman í t.d. þremur bílum þarf að bóka fyrir þrjá bíla.
Nei. Hægt er að skrá bílnúmer við bókun, en það er ekki nauðsynlegt til að ganga frá bókuninni. Degi fyrir komuna til Landmannalauga mun bókunarkerfið hinsvegar senda út áminningu og biðja um bílnúmeri sé bætt við inn í bókunina, hafi það ekki þegar verið gert.
Já, fyrirkomulagið er óháð bæði þjóðerni og búsetu.
140 bókanir verða í boði daglega yfir tímabilið sem álagsstýringin er í gildi. Framboð bókana miðast við stærð bílastæða í Landmannalaugum og fjölda bíla sem svæðið getur tekið á móti hverju sinni..
Já, bókunin gildir fyrir allan daginn.
Ef veðuraðstæður eru sérstaklega vondar á ákveðnum degi munum við opnað á að bókanir þess dags gildi í tvo daga til viðbótar.
Já, álagsstýringin hefur engin áhrif á aðra áfangastaði, vegi eða svæði innan friðlandsins heldur en Landmannalaugar sjálfar.
Nei, en æskilegt er að vera á fjórhjóladrifnum bíl á Fjallabaksleið (vegur F208). Við mælum sömuleiðis ekki með að minni jeppar fari yfir vöðin tvö við Landmannalaugar, heldur leggi á bílastæðin norðan þeirra (P1).
Gestir sem koma utan álagstíma greiða þjónustugjaldið eftir á í gegnum app eða greiðslugátt. Ef ekki er greitt verður rafræn krafa send á skráðann eiganda ökutækisins. Myndavélakerfi mun vakta umferðina og skrá komur allra bifreiða.
Þjónustugjaldið er innheimt af hverju ökutæki við komu á svæðið og er eingöngu greitt einu sinni, óháð því hversu lengi dvölin í Landmannalaugum varir.
Ef þú kemur á svæðið á milli kl. 9:00 og 16:00 án bókunar er ekki hægt að tryggja að þér verði hleypt inn á bílastæðið. Það er því mælt með að bóka bílastæði fyrirfram til að tryggja sér aðgang.
Til að leggja í Landmannalaugum á milli kl. 9:00 og 16:00 þarf bókun. Ef enn er pláss og dagurinn er ekki fullbókaður, gætir þú mögulega fengið stæði án bókunar. Hins vegar er ekki öruggt að það verði laus stæði, svo það er sterklega mælt með að bóka fyrirfram. Reynslan frá 2024 sýndi að uppselt var næstum alla daga sumarsins