20.09.2023 09:03
20. september 2023
Seinasti dagur hreindýraveiðitímabilsins. Leiðinlegt veður hefur sett strik í reikninginn seinustu daga.  Vonandi ná einhverjir að fella sín dýr í dag. Siggi Aðalsteins með veiðimenn á sv 1. fimm kýr felldar ofan við Hróaldsstaði við Efri Þverá og á Randíðarási. Eiður Gísli með veiðimenn á sv. 7,  fjórar kýr felldar,  tvær á Þakeyri og tvær á Melrakkanesfjalli. Veiðitímabilinu er þá lokið að þessu sinn.  Aðeins fimm kýrleyfi af útgefnum kvóta voru ekki felld.  4 á sv. 7 og 1 á sv. 1.   34 kýrleyfi útgefin a´sv. 8. og sv. 9 eru svo í nóvemberveiðunum.  Þakka leiðsögumönnum og veiðimönnum fyrir góð samskipti á tímabilinu. 
Til baka