Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Tillaga að breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar við Bakkafjörð 


Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um nýtt starfsleyfi fyrir Thor landeldi ehf. vegna landeldis á laxfiski í Ölfusi. Umsóknin barst 5. mars síðastliðinn.

Rekstraraðili sækir um heimild til að framleiða 20.000 tonn af laxfiski í landeldi á ári. Á næstunni verður farið yfir umsóknina og metið hvort hún sé fullnægjandi. Verði umsókn metin fullnægjandi verður í framhaldinu unnin tillaga að starfsleyfi og tillagan auglýst í fjórar vikur.

Öllum gefst tækifæri á að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.