Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Söluskrár 2024 notendaleyfisskyldar vörur og tilnefning ábyrgðaraðila

Tilgangur:

  • Að óska eftir skrám yfir sölu frá þeim sem setja á markað notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni en þessum upplýsingum ber að skila til Umhverfis- og orkustofnunar ár hvert, sbr. 24. gr. efnalaga nr. 61/2013.
  • Að fá upplýsingar um magn notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna sem seldar voru árið 2024 og nota þær upplýsingar til að ákvarða samsvarandi magn af virkum efnum.
  • Að athuga hvort að þeir sem markaðssetja notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni sinni þeirri skyldu sinni að ganga úr skugga um að vörurnar séu einungis afhentar handhöfum gildra notendaleyfa frá Umhverfis- og orkustofnun, sbr. 24. gr. efnalaga nr. 61/2013.
  • Að athuga hvort söluaðilar notendaleyfisskyldra vara hafi tilnefnt ábyrgðaraðila í markaðssetningu sbr. 24. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

Verkefnið náði til allra þekktra söluaðila notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Umhverfis- og orkustofnun óskaði eftir skrám vegna sölu notendaleyfisskyldra vara á árinu 2024 þar sem fram kæmu upplýsingar um eftirfarandi fyrir hverja sölu: dagsetning sölu, nafn og kennitala notendaleyfishafa, gildistími notendaleyfis þegar sala fór fram, nafn og kennitala fyrirtækis (ef við á), heiti vöru, styrkur virks efnis/virkra efna, umbúðastærð vöru og fjöldi seldra/afhentra vörueininga.

Eftirfarandi fyrirtæki féllu undir umfang eftirlitsins:

  • Eco Garden ehf.
  • Garðheimar – Gróðurvörur ehf.                   
  • Grastec ehf.
  • Kemi ehf.
  • NPK ehf.
  • Samhentir Kassagerð hf.
  • Streymi heildverslun ehf.
  • Sölufélag garðyrkjumanna ehf.

Á árinu 2024 voru seldar 39 vörutegundir notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og nam salan alls 4797 kg sem samsvarar 1559 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 1. Af notendaleyfisskyldum útrýmingarefnum voru seldar 17 vörutegundir og nam salan alls 9240 kg en það samsvarar 12,2 kg af virku efni, sjá nánar í töflu 2. Athygli er vakin á að styrkur virkra efna í nagdýraeitri er mun minni en í skordýraeitri eða einungis 0,005% og því er magn virkra efna í nagdýraeitri sem selt var mun minna en í skordýraeitri.

Tafla 1 Notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur sem seldar voru árið 2024

 

Illgresiseyðir

Skordýraeyðir

Sveppaeyðir

Stýriefni

Samtals

Fjöldi vara í sölu

15

8

13

3

39

Fjöldi virkra efna

15

8

16

4

43

Sala alls af vörum, kg

1998

346

2321

133

4797

Sala alls (sem kg af virku efni)

804

23

710

22

1559


Tafla 2 Notendaleyfisskyld útrýmingarefni sem seld voru árið 2024

 
Nagdýraeitur
Skordýraeitur
Samtals
Fjöldi vara í sölu

9

8

17

Fjöldi virkra efna

1

7

8

Sala alls af vörum, kg

8777

463

9240

Sala alls (sem kg af virku efni)

0,443

11,714

12,157


Eingöngu má afhenda notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og útrýmingarefni til aðila sem hafa gild notendaleyfi útgefin af Umhverfis- og orkustofnun. Niðurstöður verkefnisins, sem byggja á framlögðum gögnum söluaðila, sýna að af alls 122 kaupendum notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara voru 101 (84%) með notendaleyfi í gildi, en í tilfelli 21 viðskiptavinar (17%) var ekki hægt að rekja sölu til notendaleyfis í gildi þegar kaupin áttu sér stað. Þessir 122 kaupendur notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara fengu í allt afhentar plöntuverndarvörur í 378 skipti á árinu 2024 og af þeim voru 42 skipti (11%) ekki rakin til notendaleyfis í gildi. Alls voru 107 aðilar sem keyptu útrýmingarefni á árinu 2024 og voru 104 (97%) þeirra með notendaleyfi í gildi þegar kaupin áttu sér stað, en 3 (3%) voru ekki með notendaleyfi í gildi. Í allt fengu þessir 107 kaupendur notendaleyfisskyldra útrýmingarefna afhentar vörur í 463 skipti og af þeim var ekki hægt að rekja 5 skipti (1%) til notendaleyfis í gildi. Sjá nánar töflu 3.

Tafla 3 Fjöldi notendaleyfishafa sem keypti notendaleyfisskyldar vörur á árinu 2024, fjöldi sala/afhendinga notendaleyfisskyldra vara, tölfræði gildistíma leyfist þegar kaup fóru fram og hlutfall sölu/afhendinga sem ekki voru raktar til notendaleyfis í gildi.

 
Notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum
 
Notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum
 
Fjöldi
%
Fjöldi
%
Kaupandi með leyfi í gildi
101
83%
104
97%
Kaupandi ekki með leyfi í gildi
21
17%
3
3%
Kaupendur alls
122
 
107
 
 
 
 
 
 
Fjöldi sala/afhendinga
378
 
463
 
Sala rakin til leyfis í gildi
336
89%
458
99%
Sala ekki rakin til leyfis í gildi
42
11%
5
1%

Hlutfall þeirra sem voru með notendaleyfi í gildi við kaup á notendaleyfisskyldum vörum lækkaði lítillega frá árinu 2023 en þá voru 84% kaupenda notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara með notendaleyfi í gildi þegar kaup fóru fram og 99% kaupenda notendaleyfisskyldra útrýmingarefna. Árið 2024 voru sambærilegar tölur 83% og 97%. Í allt voru 11% sala notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara ekki raktar til notendaleyfis í gildi og 1% sala notendaleyfisskyldra útrýmingarefna ekki rakin til notendaleyfis í gildi. Stofnunin hefur áréttað við söluaðila notendaleyfisskyldra vara, sem skiluðu inn gögnu sem sýna að ekki var í öllum tilfellum gengið úr skugga um að kaupendur væru með notendaleyfi í gildi, ræki lagaskyldur sínar hvað þetta varðar.

Í eftirlitinu kom í ljós að allir nema einn söluaðili notendaleyfisskyldra vara höfðu tilnefnt ábyrgðaraðila í markaðssetningu notendaleyfisskyldra vara. Viðkomandi söluaðili hefur nú bætt úr þessu og tilnefnt ábyrgðaraðila.