Frétt

Mynd: Skarphéðinn G. Þórisson

Umsóknafrestur um veiðileyfi á hreindýr rann út þann 1. mars og nú styttist óðum í útdrátt. Dregið verður úr umsóknum um hreindýraveiðileyfi í beinu streymi laugardaginn 05. mars klukkan 14.00. Útdrættinum verður útvarpað hér á vefsíðu Umhverfisstofnunar en vegna veikinda var ekki hægt að draga frá Egilsstöðum þetta árið. 

Upptaka af útdrættinum

Breytilegt er eftir umsóknum hvaða líkur menn hafa á að fá úthlutað veiðileyfi en alls bárust 3298 umsóknir, þar af 3288 gildar. Kvótinn í ár er samtals 1021 dýr, 475 tarfar og 546 kýr. Í ár eru 52 veiðimenn á fimmskiptalista.
  
Fyrirkomulag útdráttarins er einfalt. Allir sem sækja um fá úthlutað handahófskenndu númeri í útdrættinum sem getur verið á bilinu 1 til 100.000. Þeir sem fá lægstu númerin ganga fyrir í útdrættinum á hverju veiðisvæði fyrir sig. Ef kvótinn hljóðar upp á 100 dýr á svæðinu eru það einfaldlega þeir sem eru með 100 lægstu númerin sem fá veiðileyfi. Röð á biðlista ræðst af sama fyrirkomulagi. 
 
Vakin er sérstök athygli á að greiða þarf veiðileyfið að fullu ekki síðar en 19. apríl. Tilgangurinn er að hægt sé að byrja fyrr að úthluta veiðileyfum af biðlista.  

Allir sem fá úthlutað hreindýraveiðileyfi þurfa einnig að standast skotpróf fyrir 1. júlí en heimilt er að reyna þrisvar sinnum við skotprófið. Standist menn ekki skotprófið er veiðileyfinu úthlutað til næsta manns á biðlista.  

Úthlutunarreglur 
Reglur um skotpróf