Frétt

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1450 dýr á árinu, 1061 kú og 389 tarfa.

Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í auglýsingu sem birtist í Lögbirtingablaðinu. Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Verð fyrir veiðileyfin eru 150.000 kr. fyrir tarf (hækkun um 10000 kr.) og 86.000 (hækkun um 6000 kr. fyrir kú. Úthlutuð veiðileyfi skulu greiðast að fullu eigi síðar en 15.apríl.

Umsóknum skal skilað rafrænt á þjónustuvef Umhverfisstofnunar, Mínar síður og er umsóknarfrestur um hreindýraveiðileyfi til og með 15. febrúar. Hægt er að sækja um til miðnættis þann dag.

Hér að neðan má sjá hvernig veiðikvóti skiptist milli svæða og kynja. Á svæði 8 verður heimilt að veiða 40 kýr í nóvember á tímabilinu frá 1. til 20. og þarf að velja um það í umsóknarferlinu.