Textaspá - Yfirlit
Veðuryfirlit
700 km ASA af Hvarfi er nærri kyrrstæð 990 mb lægð, en 300 km NV af Írlandi er 989 mb lægð, sem þokast NV.
Samantekt gerð: 08.09.2010 13:06.
Veðurlýsing
Á hádegi var austlæg átt, víða 3-8 m/s, en 10-15 syðst. Dálítil rigning var S- og A-lands, en annars skýjað með köflum og víða þokuloft úti ströndina. Hiti var 8 til 17 stig, hlýjast á Skrauthólum.
Samantekt gerð: 08.09.2010 13:13.
Veðurhorfur á landinu
Austan 3-8 m/s, en 8-13 syðst. Rigning með köflum S- og A-lands, en annars skýjað með köflum og þokuloft úti við sjóinn. Hægari vindur S-lands á morgun, en rigning víða um land, einkum þó SA-til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast N- og V-lands.
Spá gerð: 08.09.2010 13:12. Gildir til: 09.09.2010 18:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 5-10 m/s, en hægari á morgun. Lítilsháttar rigning öðru hvoru. Hiti 12 til 17 stig.
Spá gerð: 08.09.2010 13:10. Gildir til: 09.09.2010 18:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Austlæg átt, víða 3-8 m/s og dálítil rigning, en skýjað og þurrt að mestu á N-landi. Hiti 10 til 15 stig.
Á laugardag:
Suðvestlæg átt með skúrum eða rigningu víða um land, síst þó SA-lands. Hiti 10 til 15 stig.
Á sunnudag:
Gengur í suðaustnátt með rigningu, en þurrt NA-lands fram á kvöld. Milt veður.
Á mánudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir í flestum landshlutum. Kólnandi veður.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðvestanátt með úrkomu N- og A-lands. Fremur svalt veður.
Spá gerð: 08.09.2010 08:27. Gildir til: 15.09.2010 12:00.



