Stök frétt

Dagbjört Jónsdóttir, nýr svæðissérfræðingur hjá Umhverfisstofnun á Norðurlandi eystra.

Dagbjört Jónsdóttir hefur verið ráðin sem svæðissérfræðingur hjá Umhverfisstofnun á Norðurlandi eystra. Hún bætist í öflugan hóp svæðissérfræðinga stofnunarinnar sem sinna samanlagt yfir hundrað náttúruverndarsvæðum um allt land.

Dagbjört var sveitarstjóri í Þingeyjarsveit á árunum 2012 til 2022 og þar áður skrifstofustjóri hjá sveitarfélaginu. 

Sem sveitarstjóri hafði Dagbjört yfirumsjón með uppbyggingu innviða við Goðafoss fyrir friðlýsingu hans. Hún sat í starfshópi vegna friðlýsingar Goðafoss og annarra friðlýsinga á svæðinu. Dagbjört er vel kunnug stjórnunar- og verndaráætlun fyrir verndarsvæði Mývatns og Laxár sem nú er í endurskoðun og mun taka þátt í þeirri vinnu. 
Dagbjört er með B.A. gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst.

Dagbjört mun starfa á Gíg, sameiginlegri starfsstöð Umhverfisstofnunar, Vatnajökulsþjóðgarðs, Landgræðslunnar og Náttúrurannsóknarstöðvar við Mývatn, Ramý. 

„Reynsla Dagbjartar sem sveitarstjóri og þátttaka í verkefnum sem tengjast friðlýsingum og stjórnunar- og verndaráætlunum mun gagnast mjög vel í starfi svæðissérfræðings á Norðausturlandi.  Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í hóp öflugs starfsfólks sem sinnir náttúruvernd hjá Umhverfisstofnun“ segir Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri á sviði náttúruverndar. 

Mynd: Dagbjört mun starfa á Gíg, starfsstöð Umhverfisstofnunar við Mývatn. 

 

Tengt efni: