Stök frétt

Hvernig hægt er að gera umhverfi barna heilsusamlegra með einföldum lausnum, upplýstu vöruvali og réttri notkun vara? / Mynd: Unsplash

Takk fyrir frábæra þátttöku í opna fyrirlestrinum um efnin á heimilinu sem fram fór þriðjudaginn 22. nóvember 2022.

Upptaka af fyrirlestrinum hefur nú verið birt:

 

Í fyrirlestrinum er fjallað um:
  • Hvaða efni í nærumhverfi barna eru skaðleg heilsu þeirra?
  • Hvaða áhrif hafa þessi efni?
  • Hvar er þessi efni helst að finna?
  • Hvað er hægt að gera til þess að lágmarka útsetningu barna?
  • Hvaða vörur og hlutir geta innihaldið  skaðleg efni?
  • Hvaða vörur er hægt að nota í staðinn?

Farið er yfir í hvaða aðstæðum eru mestar líkur  á því að börn verði fyrir útsetningu mengunarefna í umhverfinu. Skoðað er sérstaklega hvaða aðstæður og vörur ætti að varast. Tekin eru dæmi um leikföng, mataráhöld, hreinsiefni, hreinlætisvörur, byggingarefni, húsgögn og fleira.

Fjallað er um hvernig hægt er að gera umhverfi barna heilsusamlegra með einföldum lausnum, upplýstu vöruvali og réttri notkun vara.

Fyrirlesturinn flytur Bergljót Hjartardóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun. Fundarstjóri er Ísak Sigurjón Bragason, sérfræðingur í teymi efnamála.

  

Tengt efni: