Stök frétt

Fulltrúar stofnananna þriggja og Starfsgreinasambandsins

Fimmtudaginn 3. nóvember náðist sá gleðilegi áfangi að Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarður og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum annars vegar og Starfsgreinasamband Íslands hins vegar gerðu með sér nýjan og sameiginlegan stofnanasamning. Samningurinn tekur á forsendum launaröðunar landvarða, verkafólks og þjónustufulltrúa sem eru félagsfólk í kjarafélögum Starfsgreinasambandsins og tilteknum kjörum sem ekki eru tilgreind í kjarasamningi félagsins við ríkið.

Stofnanirnar þrjár leggja mikið upp úr góðu samtali um sameiginleg verkefni og unnu þétt saman að nýjum samningi ásamt fulltrúum Starfsgreinsambandsins og Landvarðafélags Íslands. 

Skoða samninginn