Stök frétt

Mynd: Skarphéðinn G. Þórisson

Hreindýraveiðitímabili haustsins lauk þriðjudaginn 20. september. Veiðar gengu í heildina vel og tókst að veiða stærsta hluta útgefins veiðikvóta, þar hjálpaði gott veður síðustu vikur veiðitímabilsins vissulega til. 

Felld voru 920 hreindýr.  Þó verður að taka fram að veiðisvæði 2 sker sig nokkuð úr hvað það varðar.  Eftirfarandi veiddist ekki af útgefnum kvóta:

  Svæði     
     Tarfar    Kýr
 2
 15        33        
 5 1
 6
1
 7 3 1
 8 1

Skýring á svo háum hluta/fjölda dýra á svæði 2 sem ekki  veiddist er sú að lítið fannst af dýrum á svæðinu. Sjá hér frétt frá 16. september

Nóvemberveiðar fara svo í hönd á hreinkúm á tveimur syðstu veiðisvæðunum þ.e.  svæði 8 og svæði 9. Alls er heimilt að veiða þar 46 kýr á tímabilinu 1. – 20. nóvember.   Þeim leyfum hefur þegar verið úthlutað.