Stök frétt

Undanfarið hefur verið unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Litluborgir í landi Hafnarfjarðar. Litluborgir voru friðlýstar sem náttúruvætti árið 2009.  

Gerð áætlunarinnar var í höndum fulltrúa Umhverfisstofnunar og Hafnarfjarðarbæjar

Tillaga að áætluninni og aðgerðaáætlun í tengslum við hana hefur nú verið lögð fram til kynningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Litluborgir eru hraunborgir og gervigígar sem myndast hafa við það að hraun hefur runnið yfir stöðuvatn. Hellar og skútar eru í hrauninu og eru þeir viðkvæmir fyrir ágangi.

Eins og áður segir liggja drög að áætluninni nú frammi til kynningar og er öllum frjálst að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum vegna hennar.

Hér má lesa nánar um Litluborgir og skila inn ábendingum.

Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum varðandi tillöguna er til og með 20. október 2022.