Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun að gefa út breytingu á starfsleyfi Arctic Sea Farm hf. í Patreks- og Tálknafirði. Breytingin felur í sér breytingu á svæði í Patreksfirði, heimild til notkunar áæsætuvarna ásamt styttingu hvíldartíma. Einnig voru gerðar breytingar og uppfærslur á leyfinu til samræmis við nýjustu leyfi sem gefin eru út af stofnuninni, allar breytingar má sjá í hornklofum í leyfinu.
Tillaga að breyttu leyfi var auglýst á tímabilinu 20. apríl 2022 til og með 19. maí 2022 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Ein athugasemd barst vegna tillögunnar á auglýsingatíma og er gert grein fyrir henni í greinargerð. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl