Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Bencmark Genetics Iceland hf. í Kollafirði.

Um er að ræða landeldi með hámarks lífamassa allt að 20 tonn og hámark framleiðslu að 20 tonnum.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn.

Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202109-047, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 22. júní 2022.

Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl