Stök frétt

Samkvæmt niðurstöðum umhverfiskönnunar Gallup 2022 hefur um 80% þjóðarinnar breytt hegðun sinni síðastliðin 5 ár til þess að lágmarka áhrif á umhverfi og loftslagsbreytingar. Flestar breytingarnar eru í takti við aðgerðir úr Saman gegn sóun sem er úrgangsforvarnarstefna umhverfis- orku- og loftslagsráðherra.

Niðurstöðurnar voru kynntar á Umhverfisráðstefnu Gallup í Hörpu þann 22. mars. 

Bein tengsl við Saman gegn sóun

Fimm af tíu algengstu breytingunum sem hafa orðið á hegðun fólks koma beint upp úr Saman gegn sóun stefnunni. Þar að auki hafa tvær aðgerðir sterka skírskotun í boðskap verkefnisins.

Þær aðgerðir voru:

  1. Flokkað sorp (sterk skírskotun í verkefnið)
  2. Minnkað plastnotkun (plast)
  3. Minnkað notkun einnota umbúða (plast)
  4. Minnkað matarafganga (matvæli)
  5. Keypt umhverfisvænar vorur (sterk skírskotun í verkefnið)
  6. Dregið úr fjölda flugferða
  7. Dregið úr einkaneyslu (allir flokkar)
  8. Keypt notuð föt í stað nýrra / minnkað fatakaup (textíll) 
  9. Notað einkabílinn minna (nota frekar almenningssamgöngur eða hjóla)
  10. Keypt lífræn matvæli

Saman gegn sóun hóf göngu sína árið 2016 og gildir til ársins 2027. 

Í stefnunni eru níu áhersluflokkar. Þessum flokkum er skipt í tvennt; annars vegar sex flokka sem hver um sig verður í forgangi í tvö ár í senn og hins vegar þrjá flokka sem hentar betur að vinna með til lengri tíma. 

Þeir sex flokkar sem hafa nú þegar verið í forgangi í tvö ár í senn eru matvæli, plast, textíll, og árið 2022 tók við áhersla á raftæki, því næst taka grænar byggingar og pappír við keflinu. 

Raftækjasóun í brennidepli

Árin 2022-2023 verða raftæki í brennidepli hjá Saman gegn sóun. Það bíða ótal tækifæri til aðgerða fyrir umhverfið þegar kemur að raftækjum. Í kjölfarið verður svo áhugavert að fylgjast með hvort breytingar á hegðun sem tengjast raftækjum verða mælanlegar í umhverfiskönnun Gallup. 

Fylgið Saman gegn sóun á Instagram til þess að fá innsýn í raftækjasóun og aðgerðir sem sporna gegn henni.

 

Tengt efni:

Saman gegn sóun
Grænn lífstíll