Stök frétt

Mynd frá vinstri: Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, Ríkharður Gústavsson deildarstjóri Dalsins og Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Svansins

Dalurinn, mötuneyti Íslandsbanka, hefur nú hlotið Svansvottun. Með þessu framtaki sýnir Íslandsbanki gott fordæmi og samfélagslega ábyrgð samhliða því að framfylgja sjálfbærnistefnu bankans.

Aðgerðir sem starfsfólk Dalsins hefur m.a. framkvæmt í vottunarferlinu eru:

  • Mælingar og aðgerðir sem koma í veg fyrir matarsóun og samstarfi komið á við Kaffistofu Samhjálpar sem fær gefins yfir 65.000 máltíðir á ári.
  • Eingöngu er notast við umhverfisvottuð efni í eldhúsi.
  • Aukin innkaup á lífrænum vörum.

Einnig eru allar umbúðir og úrgangur sem fellur til í eldhúsinu og hjá gestum mötuneytisins vandlega flokkuð og endurunnin og orku- og vatnsmælar hafa verið settir upp til þess að fylgjast með og lágmarka notkun.

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Til að hljóta Svansvottun þurfa fyrirtæki að uppfylla strangar umhverfis- og gæðakröfur sem taka til alls lífsferils vöru eða þjónustu. Þetta er 14 leyfið innan viðmiðaflokksins og þriðja mötuneytið á Íslandi. Það er mjög ánægjulegt að sjá innanhús mötuneyti innleiða Svaninn þar sem vottunin felur ekki í sér samkeppnisforskot fyrir þessa aðila heldur er verkefnið virkilega dregið áfram af umhverfishugsjón yfirmanna mötuneytisins með góðum stuðning yfirmanna og stjórnar.

Hér er að finna nánari lýsingu á Svansvottun fyrir mötuneyti, hótel og annan veitingarekstur.