Stök frétt

Mynd tekin af vef ON

Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Orku náttúrunnar ohf. fyrir framleiðslu á vetni við Hellisheiðarvirkjun.

Verkefnið er hluti af skilgreindu þróunarverkefni á vegum Evrópusambandsins sem heitir "Hydrogen Mobility Europe (H2ME)". Verkefninu er ætlað að stuðla að notkun vetnis sem orkugjafa fyrir bifreiðar og er liður í baráttu við loftlagsbreytingar. Markmiðið er að nýta orkuframleiðsluna í Hellisheiðarvirkjun á þeim tímum sem minni eftirspurn er eftir rafmagni.

Tillaga að starfsleyfi ásamt ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdarinnar, starfsleyfisumsókn og lýsingu á framkvæmd var auglýst á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 24. nóvember til og með 22. desember 2020 og gafst á þeim tíma tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin. Engar athugasemdir eða umsagnir bárust á auglýsingatíma og var starfsleyfið gefið út með aðeins smávægilegum breytingum sem gerð er grein fyrir í greinargerð sem fylgir starfsleyfinu.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Auglýsing þessi er birt á fréttavefsvæði Umhverfisstofnunar en auk þess í sérstökum dálki fyrir opinberar birtingar á starfsleyfum sem stofnunin gefur út.

Starfsleyfi þetta, sem gefið er út í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, öðlast þegar gildi og gildir til 31. desember 2022.

Starfsleyfi