Stök frétt

Þann 24. júní sl. sendi Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. Umhverfisstofnun erindi þar sem óskað var eftir breytingu á ákvæðum starfsleyfis byggðarsamlagsins til urðunar úrgangs að Strönd.

Sérfræðingar munu nú hefja vinnu við málið. Fallist stofnunin á að breyta starfsleyfinu verður tillaga að breyttu starfsleyfi auglýst opinberlega í fjórar vikur og verður almenningi gefin kostur á að koma með athugasemdir.