Stök frétt

Vegna snjókomu og skafrennings aðfararnótt sunnudagsins 15. september sl. lentu margir bílar í vandræðum á Sigölduleið (208) og festu sig. Að því tilefni ákvað Vegagerðin í samráði við landverði Umhverfisstofnunar að merkja veginn ófæran. Þegar snjór safnast í vegi á hálendinu aka því miður margir utan vega til að forðast skafla. Landverðir urðu varir við mikinn utanvegaakstur á svæðinu og var sá lengsti um tveggja kílómetra langur. Landverðir hafa unnið við að afmá förin sem er tímafrekt verkefni en nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að aðrir bílar aki eftir hjólförum sem hafa myndast utan vega. Þar sem veður er slæmt á svæðinu og förin enn sýnileg, mun vegurinn vera merktur ófær þangað til á morgun og staðan þá tekin aftur.

Landverðir minna ökumenn á að þótt næturfrost og snjókoma hafi verið undirfarið á hálendinu er jörð ekki frosin og allur utanvegaakstur bannaður samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 60/2013. Ólöglegt er að aka utan vega á snævi þakinni jörð ef það veldur náttúruspjöllum. Ganga verður úr skugga um að jörð er frosin og með nægilega þykkum og traustum snjó svo tryggt sé að náttúran verði ekki fyrir skaða. Ef einhver vafi leikur á hvort umræddar aðstæður til aksturs séu til staðar, skal náttúran ávallt njóta vafans. Umhverfisstofnun biður einstaklinga og ferðaþjónustuaðila að huga að almennri aðgæsluskyldu þegar ferðast er um náttúru Íslands og meta aðstæður hverju sinni þegar ekið er á snjó utan vega.