Stök frétt

Fimmta september nk. býður Umhverfisstofnun til afmælisveislu með fyrirlestrum og tertum í safnaðarheimilinu á Hellu, Dynskálum 8, í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá friðlýsingu Fjallabaks. Málþingið er öllum opið og hvetjum við almenning til að taka þátt í fundinum, fræðast og minnast þeirrar merku sögu sem friðlandið hefur að geyma. Fundarstjóri: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, markaðs og kynningafulltrúi Rangárþingi ytra.

Dagskrá

15:00 – 15:05  Setning, forstjóri Umhverfisstofnunar

                            Kristín Linda Árnadóttir           

15:05 – 15:20  Umhverfis- og auðlindaráðherra

 Guðmundur Ingi Guðbrandsson

15:20 – 15:35  Sveitarstjóri Rangárþing ytra

Ágúst Sigurðsson

15:35 – 15:55  Merkar jarðminjar í Friðland að Fjallabaki

                            Kristján Jónasson, Náttúrufræðistofnun Íslands

15:55 – 16:15  Vöktun á viðhorfum ferðamanna í Landmannalaugum í 20 ár

                            Anna Dóra Sæþórsdóttir, Háskóli Íslands

16:15 – 16:45  Afmæliskaffi, Kvenfélagið Oddakirkju

16:45 – 16:55  Sögur af Fjallabaki

Kristinn Guðnason Fjallkóngur

16:55 – 17:15  Friðland að Fjallabaki í 40 ár

Hákon Ásgeirsson, Umhverfisstofnun

17:15 – 17:30  Landvarðalífið í friðlandinu

Nína Aradóttir, Umhverfisstofnun