Stök frétt

Undanfarið hefur Umhverfisstofnun, ásamt samstarfshópi skipuðum fulltrúum frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi, umhverfis- og auðlindaráðuneyti, forsætisráðuneyti, Minjastofnun Íslands og Skógræktinni, unnið að undirbúningi friðlýsingar svæðis í Þjórsárdal skv. 39. gr. laga nr.  60/2013 um náttúruvernd. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar skal Umhverfisstofnun gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur og aðra rétthafa lands, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna eiga að gæta. 

Umhverfisstofnun kynnir hér með tillögu að friðlýsingarskilmálum fyrir svæði í Þjórsárdal ásamt tillögu að mörkum svæðisins. 

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 16. september 2019.
Athugasemdum við tillöguna má skila með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Frekar upplýsingar hér