Stök frétt

Við Ljótapoll í Friðland að Fjallabaki hefur veginum vestan megin við gíginn sem liggur upp á gígbarminn verið lokað vegna mikils rasks. Brekkan upp á gígbarminn er illfær og veldur umtalsverðu raski á hlíðum gígsins sem hefur áhrif á ásýnd svæðisins. Bílastæði er við rætur Ljótapolls og tekur einungis um 10 mínútur að ganga frá bílastæðinu upp á gígbarminn. Einnig er hægt að aka norðan megin við gíginn og upp á gígbarminn. Umhverfisstofnun bendir á að vegurinn að Ljótapolli er seinfarinn og einungis fær vel útbúnum jeppum.

Megintilgangur með þessari aðgerð er að koma í veg fyrir frekara rask á hlíðum gígsins og bæta þannig ásýnd og upplifun gesta á svæðinu.