Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir tilraunaeldisstöðvar Hafrannsóknarstofnunar að Stað í Grindavík. Hafrannsóknarstofnun hefur verið með starfs- og rekstarleyfi fyrir eldi á sjávar- og ferskvatnslífverum en sækir um aukningu í 50 tonn. Tillagan ásamt umsókn rekstraraðila verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 5. apríl 2019 til og með 6. maí 2019 og gefst á þeim tíma tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.

Skipulagsstofnun mat það svo að framkvæmdin þyrftir ekki í mat á umhverfisáhrifum samkvæmt ákvörðun frá 12. mars 2019. Í niðurstöðu stofnunarinnar segir að fyrirhuguð stækkun á sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif með tilliti til eðlis framkvæmdarinnar, staðsetningar hennar og eiginleika hugsanlegra áhrifa hennar, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. rg. nr. 550/2018.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 6. maí 2019.

Tengd skjöl:
Tillaga að starfsleyfi
Skipulagsstofnun – Ákvörðum um matsskyldu
Umsókn um starfsleyfi