Stök frétt

Umhverfisstofnun lokaði svæðinu við Fjaðrárgljúfur í Skaftárhreppi, gönguslóða meðfram gilinu hinn 27. febrúar sl.  Umhverfisstofnun gerði aftur úttekt á svæðinu hinn 10. mars sl. og telur ekki forsvaranlegt að opna fyrir umferð á svæðinu að svo stöddu. Þó ástandið versni ekki á meðan frost er á svæðinu þá má búast við leysingum á svæðinu á næstu dögum. Að hafa svæðið lokað áfram er því einnig fyrirbyggjandi aðgerð til að koma í veg fyrir frekari skemmdir á svæðinu.

Umhverfisstofnun telur nauðsynlegt að gönguslóðinn meðfram Fjaðrárgljúfri verði lokaður áfram til 1. júní 2019 vegna verulegrar hættu á tjóni. Ef svæðið verður í stakk búið til að taka á móti gestum án þess að hætta sé á frekari skemmdum, verður svæðið opnað fyrr.

Samkvæmt 25. gr. a. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd er staðfesting ráðherra áskilin ef loka á svæði lengur en tvær vikur. Ákvæðið er svohljóðandi:

 „Ef veruleg hætta er á tjóni af völdum mikillar umferðar eða vegna sérstaklega viðkvæms ástands náttúru getur Umhverfisstofnun ákveðið að takmarka umferð eða loka viðkomandi svæði tímabundið fyrir ferðamönnum að fenginni tillögu hlutaðeigandi sveitarfélags, [Landgræðslunnar] eða landeiganda eða að eigin frumkvæði. Samráð skal haft um slíka ákvörðun við hlutaðeigandi sveitarfélag og fulltrúa ferðaþjónustu og útivistarfólks sem ætla má að hyggi á ferðir um svæðið. Ef um eignarland er að ræða skal ætíð haft samráð við eiganda lands eða rétthafa áður en ákvörðun er tekin. Takmörkunin eða lokunin skal að jafnaði ekki standa lengur en tvær vikur en ef nauðsyn krefur er heimilt að framlengja hana, að fenginni staðfestingu ráðherra. Ákvörðun samkvæmt þessari grein skal birta í dagblöðum og útvarpi og á vefsíðum Umhverfisstofnunar og Vegagerðarinnar.“

Umhverfisstofnun óskar hér með eftir umsögnum og samráði varðandi framlengingu lokunar fyrir kl. 10:00 á morgun, þriðjudaginn 12. mars nk. svo að framlenging lokunar geti tekið gildi kl. 09:00 árdegis miðvikudaginn 13. mars nk.

Ef óskað er frekari upplýsinga vinsamlegast hafið samband við Daníel í síma 822-4018 eða sendið fyrirspurnir netfangið: daniel.jonsson@umhverfisstofnun.is