Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur þann 26. febrúar 2019 gefið út nýtt starfsleyfi fyrir Reykjagarð hf. fyrir eldi alifugla (kjúklinga) í allt að 60.000 stæðum fyrir fugla á búi Jarlsstaða í Landssveit Rangárþingi ytra. 

Starfsleyfistillagan var auglýst opinberlega á tímabilinu 14. desember 2018 til 12. janúar 2019 og var gefinn kostur á að koma með skriflegar athugasemdir við tillöguna. Engar athugasemdir við starfsleyfistillöguna bárust á auglýsingartíma. 

Starfsleyfi þetta, sem er veitt samkvæmt reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, sbr. lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. 

Auglýsing þessi er birt á fréttasvæði Umhverfisstofnunar en auk þess í sérstökum dálki fyrir opinberar birtingar á starfsleyfum sem stofnunin gefur út. 

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. 

Fylgiskjöl:

Starfsleyfi og greinargerð
Bréf um útgáfu starfsleyfis
Matsskylduákvörðun
Greinargerð matsskyldufyrirspurnar
BAT-skýrsla þauleldis
Niðurstöður um bestu aðgengilegu tækni (BAT conclusions)
Umsókn
Umsögn Umhverfisstofnunar um matsskyldufyrirspurn