Stök frétt

Umhverfisstofnun og Reykjavíkurborg hafa undanfarið unnið að undirbúningi friðlýsingar Akureyjar í Kollafirði og er tillaga að friðlýsingarskilmálum hér með auglýst til kynningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Frestur til að skila athugasemdum við tillögu Umhverfisstofnunar og Reykjavíkurborgar er til og með 1. maí 2019. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má finna hér